Carbfix hefur þróað byltingarkennda lausn sem breytir CO₂ í stein á innan við tveimur árum. Með því að steinrenna CO₂ er Carbfix í fremstu röð á heimsvísu þegar kemur að öruggri og varanlegri geymslu á CO₂ og mikilvægur hluti af þeim lausnum sem þörf er á til að takast á við loftslagsbreytingar.
























Markmið okkar er að hafa raunveruleg jákvæð áhrif á loftslag með öruggum og sönnuðum aðferðum við að breyta CO₂ í stein á heimsvísu.
29.3t
+
CO₂ dælt niður í dag*
100k
+
CO₂ dælt niður síðan 2014
10
+
Fjöldi verkefna
Carbfix tæknin byggir á meira en tíu ára reynslu. Á grundvelli hennar metum við hentugleika jarðlaga til varanlegrar geymslu CO₂ og drögum úr áhættu. Við sköpum verðmæti með því að framkvæma hagkvæmiathuganir, stýra tilraunaverkefnum og annast uppsetningu og rekstur niðurdælingarkerfa.
Í sumum tilvikum má beita Carbfix tækninni nálægt þeim stað þar sem CO₂ er fangað, ýmist frá iðnaði eða beinni kolefnisföngun úr andrúmslofti (e. Direct Air Capture, DAC), ef jarðlög og bergmyndanir á svæðinu henta til steindabindingar. Við bjóðum upp á ráðgjöf og sérsniðnar hagkvæmiathuganir fyrir hvert verkefni og samstarfsaðila.
Stórar móttökustöðvar, byggðar nálægt hentugum jarðlögum, spara kostnað sökum stærðarhagkvæmni. Eftir að CO₂ er fangað er það flutt til móttökustöðvarinnar og bundið þar í jörðu til frambúðar. Carbfix veitir ráðgjöf og vinnur hagkvæmiathuganir sem eru sérsniðnar að hverju verkefni.

Carbfix er með verkefni við föngunarstað, þar sem CO₂ og H₂S frá tveimur af jarðvarmavirkjunum Orku Náttúrunnar á Íslandi er dælt niður.

Coda Terminal, fyrsta móttöku- og steindabindingarstöð í heimi.

Carbfix byrjaði sem fræðilegt rannsóknarverkefni, og rannsóknir og þróun eru enn í dag mikilvægur hluti starfsemi okkar.
Visit arrangements, scientific inquiries, or any general questions
Discover our solutions and how we can work together
Contact us for your story needs, or any media related questions
Explore career openings and join our growing team of Carbfixers