Hoppa yfir valmynd

26.10.2021

Álver nýtir Carbfix tæknina í fyrsta sinn

Rio Tinto og Carbfix hafa tekið saman höndum um að fanga kolefni frá álveri ISAL við Straumsvík og binda það varanlega sem steindir í bergi í grennd við álverið.

Þetta stefnumótandi samstarf felur í sér að á lóð Rio Tinto við álverið í Straumsvík verður komið upp fyrstu móttöku- og förgunarstöð í heimi fyrir CO2, svokallaðri Coda Terminal. Þangað verður koldíoxíð flutt á fljótandi formi sjóleiðina frá iðjuverum í Norður Evrópu og því breytt í stein með Carbfix-aðferðinni við Straumsvík.

 

Rio Tinto lítur svo á að þessi örugga og hagkvæma kolefnisförgun við húsdyrnar geri álver ISAL kjörið til að verða fyrsta álverið með eigin kolefnisföngun og -förgun. Saman munu fyrirtækin einnig þróa áfram kolefnisföngunaraðferðir sem þegar er verið að prófa í álverinu með það markmiði að draga enn frekar úr kolefnislosun.

 

Edda Sif Aradóttir, framkvæmdastjóri Carbfix: „Heimsbyggðin mun ekki ná loftslagsmarkmiðum sínum án kolefnisföngunar og -förgunar. Með þessu samstarfi við Rio Tinto tökum við risastórt skref til uppbyggingar á heimsins fyrstu móttöku- og förgunarstöð fyrir koldíoxíð og leggjum þannig drjúgan skerf til loftslagsmála.“

Ivan Vella, yfirmaður álframleiðslu hjá Rio Tinto: „Sú framsækna tækni sem Carbfix hefur þróað ryður okkur þá braut að kolefnisspor álframleiðslu ISAL minnki enn frekar en endurnýjanlegt rafmagn til framleiðslunnar skilur þegar eftir smærra spor. Við munum vinna saman að lausnum á þeim tæknilegu áskorunum sem við höfum þegar hafið þróun á í álverinu. Þá munum við ennfremur horfa til tækifæra til að nýta Carbfix-tæknina til að draga úr kolefnisspori í allri starfsemi Rio Tinto þar sem við vinnum þegar að annarri tækniþróun svo sem í ELYSIS samstarfinu sem miðar að kolefnishlutlausri álframleiðslu.“

Carbfix hyggst bora fyrstu niðurdælingarholuna fyrir Coda-móttökustöðina árið 2022 og að fyrstu skipsfarmarnir af CO2 berist stöðinni 2025.

 Með Carbfix-aðferðinni eru náttúrulegir ferlar nýttir og þeim hraðað til að umbreyta CO2 varanlega í steindir. Það sem til þarf er vatn, rafmagn og svo viðeigandi berggrunnur, en basaltið umhverfis álver ISAL er einkar hentugt fyrir umbreytinguna.

 Frá árinu 2014 hefur Carbfix fangað og fargað meira 70.000 tonn af kolefni frá Hellisheiðarvirkjun Orku náttúrunnar. Nýverið tók Carbfix svo saman höndum við Climeworks um umfangsmestu kolefnisförgun heims beint úr andrúmslofti.

 Hér má lesa meira um Coda Terminal, fyrirhugaða kolefnisförgunarstöð í Straumsvík: https://www.carbfix.com/is/codaterminal

 

Carbfix CEO Edda Sif Aradottir and Rio Tinto Aluminium Chief Executive Ivan Vella.

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.