Hoppa yfir valmynd

12.08.2021

600 milljóna styrkur í loftslagsverkefni Carbfix og ON

Carbfix og Orka náttúrunnar, dótturfélög Orkuveitu Reykjavíkur, hafa hlotið styrk úr Nýsköpunarsjóði Evrópusambandsins (Innovation Fund) í verkefnið Silfurberg. Styrkurinn er einn sá hæsti sem veittur hefur verið til loftslagsverkefnis hér á landi og nemur um 3,9 milljónum evra, sem svara til tæplega 600 milljóna króna. Þetta er jafnframt í fyrsta sinn sem íslenskt verkefni er styrkt af sjóðnum.

Sporlaus vinnsla á Hellisheiði

Markmið Silfurbergs-verkefnisins er að byggja nýja hreinsistöð við Hellisheiðarvirkjun sem mun fanga nær allt koldíoxíð og brennisteinsvetni úr útblæstri virkjunarinnar sem síðan verður dælt niður í nálæg basaltberglög til varanlegrar steinrenningar með Carbfix tækninni. Þar með mun Orka náttúrunnar skipa sér í fremsta flokk grænnar jarðvarmanýtingar með sporlausri framleiðslu rafmagns og varma.

Carbfix-aðferðin virkar gegn loftslagsvánni

Carbfix hefur þróað tækni fyrir varanlega bindingu koldíoxíðs við Hellisheiðarvirkjun frá árinu 2007 í samstarfi við innlendar og erlendar rannsóknastofnanir. Tæknin krefst einungis rafmagns og vatns og hefur starfsemin óveruleg umhverfisáhrif.  Tæknin felur í sér að leysa koldíoxíð  í vatni og dæla niður í basaltberggrunninn þar sem náttúruleg ferli steinrenna það til frambúðar. Með þessu móti er koldíoxíðið varanlega bundið í steindum djúpt í berggrunninum og þannig komið í veg fyrir áhrif þess á loftslagið. Einnig er hægt að beita aðferðinni fyrir aðrar gastegundir á borð við brennisteinsvetni, en það hefur einnig verið fangað frá virkjuninni og dælt niður frá árinu 2014.

Stærri og öflugri hreinsistöð

Núverandi hreinsistöð Hellisheiðarvirkjunar fangar um 30% koldíoxíðs og um 75% brennisteinsvetnis úr útblæstri hennar, eða um 12 þúsund tonn af koldíoxíði og um 7 þúsund tonn af brennisteinsvetni á ári. Styrkurinn sem Silfurbergsverkefnið hlýtur verður notaður fyrir hönnun og byggingu stærri og öflugri stöðvar við virkjunina sem stefnt er að gangsetja árið 2025. Þar með verður nær öll losun koldíoxíðs  og brennisteinsvetnis frá virkjuninni hreinsuð, eða um 34 þúsund tonn af koldíoxíði og um 12 þúsund tonn af brennisteinsvetni á ári.

Aðgerðir til að ná loftslagsmarkmiðum

Loftslagsáætlun Íslands gerir ráð fyrir 55% samdrætti í losun á koldíoxíði frá orkuframleiðslu og iðnaði sem fellur undir beina ábyrgð Íslands fyrir 2030. Silfurbergsverkefnið mun draga úr losun sem nemur um 10% af þessum samdrætti. Niðurstöður verkefnisins munu jafnframt gagnast til að minnka losun frá öðrum jarðhitavirkjunum bæði hér á landi og erlendis, auk þess sem mögulegt er að beita tækninni til að minnka losun frá annarri iðnaðarstarfsemi á borð við stálver, sementsframleiðslu og brennslu og urðun sorps.

Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix: „Það er mikil viðurkenning fyrir ungt þekkingarfyrirtæki eins og Carbfix að fá svo veglegan styrk úr nýsköpunarsjóðnum og til merkis um að kolefnisförgun með Carbfix tækninni er í senn hagkvæm og umhverfisvæn loftslagslausn sem getur haft áhrif langt út fyrir landsteinanna.“

Berglind Rán Ólafsdóttir, framkvæmdastýra Orku náttúrunnar: „Nýja loftslagsskýrslan frá Sameinuðu þjóðunum sýnir að við verðum öll að gera betur í baráttunni gegn loftslagsvánni. Orkan frá ON – hvorttveggja rafmagnið og heita vatnið – er græn en við viljum, verðum og ætlum að gera enn betur. Á grunni styrksins stígum við stórt skref í átt að sporlausri starfsemi, metnaðarfullri og um leið nauðsynlegri vegferð sem öll fyrirtæki ættu að taka þátt í.“

Berglind Rán Ólafsdóttir og Edda Sif Aradóttir, Framkvæmdastýrur

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.