

Stærsti styrkur ESB á Íslandi
Styrkurinn sem Carbfix hlýtur er sá stærsti sem íslenskt fyrirtæki hefur fengið úr sjóðum ESB. Er hann veittur úr Nýsköpunarsjóði ESB sem er einn stærsti styrktaraðili grænna nýsköpunarverkefna og fellur undir stjórn Loftslags- og umhverfisstofnunar ESB (CINEA). Sjóðurinn hefur skuldbundið sig til að ráðstafa um 38 milljörðum evra á tímabilinu 2020-2030 til að styðja við skölun á lausnum sem draga úr kolefnislosunar í evrópskum iðnaði. Stór brautryðjendaverkefni ásamt smærri verkefnum frá löndum innan Evrópska efnahagssvæðisins geta sótt um stuðning frá sjóðnum.
Áætlað er að styrkupphæðin nemi ríflega þriðjungi af kostnaði verkefnisins. Afgangurinn verður fjármagnaður af fjárfestum með þátttöku í sérstöku verkefnafélagi sem þegar hefur verið stofnað, og er dótturfélag Carbfix. Viðræður við áhugasama fjármögnunarðila eru þegar hafnar og lofa góðu.
Undirbúningur að Coda Terminal verkefninu er í fullum gangi. Markmið verkefnisins er að fanga CO2 úr útblæstri frá iðnaði í Evrópu og flytja með skipum til Straumsvíkur þar sem því verður dælt í geymslutanka við hafnarbakkann. CO2 verður síðan leyst í vatni áður en því verður dælt djúpt í berglög þar sem það binst í steindum á innan við tveimur árum með Carbfix tækninni.
Carbfix tæknin hefur verið sannreynd sem hagkvæm og umhverfisvæn leið til að binda CO2 varanlega og koma þannig í veg fyrir áhrif þess á loftslagið. Aðferðin hermir eftir og flýtir fyrir náttúrulegum ferlum.
Flýtir fyrir náttúrulegum ferlum
Undirbúningur að Coda Terminal verkefninu er í fullum gangi. Markmið verkefnisins er að fanga CO2 úr útblæstri frá iðnaði í Evrópu og flytja með skipum til Straumsvíkur þar sem því verður dælt í geymslutanka við hafnarbakkann. CO2 verður síðan leyst í vatni áður en því verður dælt djúpt í berglög þar sem það binst í steindum á innan við tveimur árum með Carbfix tækninni.
Carbfix tæknin hefur verið sannreynd sem hagkvæm og umhverfisvæn leið til að binda CO2 varanlega og koma þannig í veg fyrir áhrif þess á loftslagið. Aðferðin hermir eftir og flýtir fyrir náttúrulegum ferlum. Nafnið á verkefninu Coda* vísar til niðurlags tónverka sem gefur til kynna sögulok og er oft tæknilega krefjandi.

Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix
Þetta er fyrst og fremst gríðarleg viðurkenning fyrir okkur sem störfum hjá Carbfix og hjálpar okkur við að koma Coda Terminal á þann stað að við getum farið að farga CO2 í miklum mæli í Straumsvík. Við viljum að Ísland sé í ákveðnu forystuhlutverki þegar kemur að föngun og förgun því hér eru kjöraðstæður til varanlegrar og öruggrar kolefnisförgunar. Aðferð okkar byggir auðvitað á íslensku hugviti og það er okkar sýn að hún geti nýst víða um heim.
CO2 verður flutt hingað til lands með sérhönnuðum skipum skipafélagsins Dan-Unity sem ganga fyrir vistvænu eldsneyti. Dan-Unity er danskt rótgróið skipafélag sem hefur mikla reynslu í flutningi á gasi.
Linkur á tilkynningu frá Nýsköpunarsjóði Evrópusambandsinsins.
Heimasíða verkefnisins.
Linkur á tilkynningu frá Nýsköpunarsjóði Evrópusambandsinsins.
Heimasíða verkefnisins: www.codaterminal.is
Linkur á ,,Hvað getum við gert?'' þátt Sagafilm um Coda Terminal.
Heimsóknir, vísindalegar fyrirspurnir og almennar spurningar
Skoðaðu lausnirnar okkar og hvernig við getum unnið saman
Hafðu samband með fyrirspurnir tengdar fjölmiðlum
Hefur þú áhuga á að vinna hjá Carbfix? Skoðaðu störf í boði hér