

„Við erum spennt fyrir samstarfinu með Aker Carbon Capture. Þar sameinast tvær leiðandi loftslagslausnir sem geta dregið verulega úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda en þörfin fyrir slíkt er nú brýnni en nokkru sinni,” segir Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix.
Carbfix aðferðin sem snýr að kolefnisförgun umbreytir CO2 í stein með því að dæla því niður í basaltberg en um er að ræða hröðun á náttúrulegu ferli. „Basaltbergið sem hentar vel fyrir steinrenningu koldíoxíðs er að finna víða um heim en til að mynda er mikið af því bæði í Evrópu og Norður Ameríku. Carbfix aðferðin opnar því tækifæri fyrir varanlega förgun CO2 á gígatonn skala,“ segir Edda Sif.
„Hinn sterki vísindalegi grunnur sem Carbfix hvílir á fellur mjög vel að föngunartækni okkar en við leggjum áherslu á að hún sé örugg og hafi hvorki áhrif á heilsu fólks né umhverfi,” sagði Valborg Lundegaard, framkvæmdastýra Aker Carbon Capture. „Saman getum við boðið iðnfyrirtækjum upp á heildstæða lausn þegar kemur að föngun og förgun kolefnis með því að umbreyta því í stein neðanjarðar á hagkvæman og öruggan hátt.”
Með viljayfirlýsingunni er einnig stefnt að því að meta og kanna áhugaverða framtíðarmöguleika til að vinna saman að verkefnum er snúa að föngun og förgun.
Heimsóknir, vísindalegar fyrirspurnir og almennar spurningar
Skoðaðu lausnirnar okkar og hvernig við getum unnið saman
Hafðu samband með fyrirspurnir tengdar fjölmiðlum
Hefur þú áhuga á að vinna hjá Carbfix? Skoðaðu störf í boði hér