Hoppa yfir valmynd

25.04.2024

Carbfix í samstarf við Deep Sky um kolefnisverkefni í Kanada

Carbfix og kanadíska fyrirtækið Deep Sky hafa stofnað til samstarfs um að kanna möguleika á að beita Carbfix-aðferðinni til bindingar kolefnis í jörðu í Quebec-fylki í Kanada. Forkönnun fyrirtækjanna á því hvort jarðlög í Quebec kunni að henta til að binda koldíoxíð í formi kolefnissteinda var hleypt af stokkunum í janúar síðastliðnum og stendur fram til júní.

Könnunin lýtur að því að safna jarðfræðiupplýsingum um þrjú afmörkuð landsvæði, greina þær og framkvæma rannsóknir á sýnum til að fá hugmynd um þá eiginleika jarðefnanna sem mestu skipta fyrir steindabindingu.

 

„Samstarf okkar við Deep Sky fellur að markmiði okkar um að þróa nýjar, sjálfbærar virðiskeðjur og lausnir til öruggrar og varanlegrar kolefnisbindingar í jörðu,“ segir Edda Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix. „Verkefnið í Quebec miðar að því að færa okkur skrefi nær markmiðum heimsins um kolefnishlutleysi og endurspeglar metnað beggja fyrirtækja til að vinna gegn loftslagsvánni.“

 

Deep Sky, sem er með höfuðstöðvar í Montreal, er verkefnaþróunarfélag með áherslu á föngun koldíoxíðs úr andrúmsloftinu og varanlega bindingu þess í jörðu. „Markmið okkar er að byggja upp verkefni sem ganga út á föngun og bindingu kolefnis í Kanada,“ segir Damien Steel, forstjóri Deep Sky. „Til þess þurfum við að greina með skipulegum hætti á hvaða svæðum í Kanada helstu tækifærin til kolefnisbindingar liggja. Okkur er ánægja að vinna með Carbfix, sem er leiðandi fyrirtæki á sviði kolefnisbindingar í jörðu, í þessu mikilvæga verkefni í Quebec.“

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.