Carbfix
News Media Header
26 Oct 2026
Carbfix rannsakar möguleika á varanlegri geymslu CO₂ á Grundartanga fyrir íslenska stóriðju
Mikilvægum áfanga var nýlega náð á Grundartanga þegar lokið var við rannsóknarborun sem ætlað er að varpa ljósi á hvort jarðlög á svæðinu henti til varanlegrar geymslu koldíoxíðs (CO₂). Verkefnið er unnið í samstarfi Carbfix, Elkem, Norðuráls og Þróunarfélags Grundartanga, með stuðningi Orku- og loftslagssjóðs.

Boruninni lauk eftir að holan náði 1.504 metra dýpi og standa nú yfir mælingar, ádælingarpróf og frekari rannsóknir sem munu veita mikilvægar upplýsingar um eiginleika berggrunnsins og möguleika svæðisins til framtíðar um varanlega geymslu CO₂ frá iðnaði á svæðinu.

 

Grundartangi er eitt stærsta og öflugasta iðnaðarsvæði landsins og gegnir lykilhlutverki í verðmætasköpun og útflutningi Íslands. Þar hefur á undanförnum árum verið lögð aukin áhersla á samstarf fyrirtækja, hringrásarhugsun og sjálfbæra nýtingu auðlinda. Rannsóknarborunin er því bæði mikilvægt vísindalegt verkefni sem gagnast öllu svæðinu varðandi jarðfræðina, heldur einnig mikilvægt skref í að kanna hvernig efla megi samkeppnishæfni íslenskrar stóriðju til framtíðar með minni losun CO₂.

 

Fyrir Carbfix er verkefnið jafnframt framhald af þeirri vegferð sem fyrirtækið hefur markvisst byggt upp með iðnaðinum á Grundartanga. Fyrr hefur verið greint frá samstarfi Carbfix og Elkem sem miðar að því að kanna hvernig nýta megi íslenska sérstöðu, endurnýjanlega orku og jarðfræðilegar aðstæður til að styðja við framtíð iðnaðarframleiðslu á Íslandi og draga úr losun frá orkufrekum atvinnugreinum.

 

Niðurstöður rannsóknarinnar munu ekki aðeins skera úr um tæknilega möguleika svæðisins heldur einnig veita mikilvæga innsýn fyrir fyrirtæki, stjórnvöld og aðra hagaðila sem vinna að uppbyggingu innviða og lausna sem geta stutt við framtíð íslensks iðnaðar. Með aukinni þekkingu á möguleikum Grundartanga skapast sterkari forsendur fyrir frekari uppbyggingu, nýsköpun og langtímafjárfestingum sem styrkja stöðu Íslands í alþjóðlegri samkeppni.

 

Verkefnið hefur þegar vakið athygli utan atvinnulífsins og var meðal annars fjallað um rannsóknarborunina í Landanum á RÚV. Í umfjölluninni er rætt við sérfræðinga verkefnisins og farið yfir mikilvægi rannsóknarinnar fyrir loftslagsmál og framtíðarmöguleika svæðisins. Hægt er að nálgast umfjöllunina hér: Bora holu til að sporna við hlýnun jarðar. 

 

Frekari niðurstaðna úr rannsóknunum er vænst á næstu mánuðum og munu þær veita mikilvægan grunn fyrir ákvarðanir um næstu skref á Grundartanga.

Hafa samband

Contact Us Image
Almennt

Heimsóknir, vísindalegar fyrirspurnir og almennar spurningar

Contact Us Image
Viðskipti

Skoðaðu lausnirnar okkar og hvernig við getum unnið saman

Contact Us Image
Fjölmiðlar

Hafðu samband með fyrirspurnir tengdar fjölmiðlum

Contact Us Image
Störf

Hefur þú áhuga á að vinna hjá Carbfix? Skoðaðu störf í boði hér