Hoppa yfir valmynd

31.03.2022

Carbfix semur við EFLU um forhönnun Coda Terminal

Carbfix hefur samið við EFLU um forhönnun á Coda Terminal, fyrirhugaðri móttöku- og förgunarstöð fyrir koldíoxíð (CO2) í Straumsvík.

Áætluð afkastageta: 3 milljónir tonna á ári

 Coda Terminal er ætlað að taka á móti 3 milljónum tonna af koldíoxíði á ári og farga því með Carbfix tækninni. Hún felst í að blanda það vatni og dæla því niður í basaltjarðlög, þar sem það umbreytist varanlega í stein með náttúrulegum ferlum.

 Koldíoxíðið verður annars vegar fangað frá iðnaði í Norður-Evrópu og flutt hingað til lands með sérhönnuðum skipum, og hins vegar frá álveri Rio Tinto í Straumsvík. Stefnt er að því að niðurdæling í tilraunaskyni hefjist 2023 og að stöðin nái fullum afköstum 2031, en þau samsvara meira en helmingi af árlegri heildarlosun Íslands á CO2.

 Þróun Carbfix tækninnar hófst árið 2007. Hún hefur allt frá árinu 2014 verið notuð til að umbreyta samtals um 80 þúsund tonnum af koldíoxíði frá Hellisheiðarvirkjun í stein. Á liðnu ári hófst einnig á sama stað förgun á koldíoxíði frá Orca stöð Climeworks, stærsta lofthreinsiveri heims sem fangar CO2 úr andrúmslofti.

 

„Loftslagsmarkmiðum heimsins verður ekki náð án þess að stigin verði stór skref í föngun og förgun kolefnis. Með átta ára samfelldum rekstri á Carbfix tækninni á iðnaðarskala höfum við sýnt fram á að hún er hagkvæm og örugg leið sem virkar, en með Coda Terminal lætur nærri að við tvöhundruðföldum afkastagetuna. Samningurinn við Eflu er mikilvægt og ánægjulegt skref að því marki,“ segir Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix.

„EFLA hefur um árabil lagt höfuðáherslu á lofslagsmál í öllum sínum verkefnum. Við hjá EFLU erum því afar stolt af að hafa verið metin hæfust til að forhanna Coda Terminal og fá þannig að taka þátt í þessu gríðarlega mikilvæga verkefni. Ljóst er að hnattræn hlýnun verður ekki stöðvuð nema með því að beita öllum lausnum sem til eru. Sviðsmyndir IPCC reikna flestar með því að nokkur hluti af samdrætti í losun verði að koma til með föngun og förgun á CO2. Ísland gegnir hér mikilvægu hlutverki því hér eru kjöraðstæður fyrir þessa tegund förgunar. Við getum sannað fyrir umheiminum að þetta sé hægt á mjög stórum skala og þegar fram í sækir gæti þetta orðið okkar stærsta framlag til loftslagsmálanna,“ segir Reynir Sævarsson, hönnunarstjóri Coda Terminal og stjórnarformaður EFLU.

 

Áfram verður lögð áhersla á gagnsæi og náið samráð við hagsmunaaðila við þróun verkefnisins.

Nánari upplýsingar um Coda Terminal verkefnið má finna á vefnum www.codaterminal.is.

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.