Hoppa yfir valmynd

20.05.2022

Fjölgar í teymi Carbfix

Carbfix hefur ráðið þrjá starfsmenn með það að markmiði að halda áfram að byggja upp loftslagsvænan iðnað sem byggir á grænni nýsköpun og íslensku hugviti.

Carbfix hefur ráðið þrjá starfsmenn með það að markmiði að halda áfram að byggja upp loftslagsvænan iðnað sem byggir á grænni nýsköpun og íslensku hugviti. 

Edda Björk Ragnarsdóttir og Ólafur Einar Jóhannsson hafa verið ráðin til að sinna sérfræðistörfum á sviði viðskiptaþróunar á alþjóðavettvangi til að styðja við frekari vöxt Carbfix á heimsvísu.

Edda Björk Ragnarsdottir

Edda Björk er lögfræðingur og hefur undanfarin ár starfað hjá Samtökum iðnaðarins. Þar áður var hún sérfræðingur í fastanefnd Íslands í Genf, starfaði hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði hugverkaréttar og við lögfræðirannsóknir við Háskóla Íslands.

„Það eru sannarlega áhugaverðir tímar framundan. Mikilvægasta verkefni þessarar aldar er að draga úr losun og farga koldíoxíði sem er nú þegar komið út í andrúmsloftið til að hægja á loftslagsbreytingum. Ég lít á það sem spennandi tækifæri að fá að leggja baráttunni við loftslagsvána lið innan raða Carbfix, eins fremsta fyrirtækis á sínu sviði í heiminum,“ segir Edda Björk.

Olafur Einar Johannsson

Ólafur Einar er viðskiptafræðingur með MBA-gráðu. Hann hefur yfirgripsmikla reynslu af alþjóðlegri viðskiptaþróun og stjórnun í kaupskipaútgerð, rekstri og tæknilegum skiparekstri.

„Ljóst er að loftlagsmarkmið heimsins munu ekki nást án umfangsmikillar kolefnisföngunar og -förgunar. Það er hratt vaxandi grein sem ég er stoltur af að vera hluti af,“ segir Ólafur Einar.

Heiða Aðalsteinsdottir

Heiða Aðalsteinsdóttir hefur verið ráðin til að sinna stefnumótandi stjórnun og hafa umsjón með skipulagi og umhverfismati á starfssvæðum Carbfix. Heiða er menntuð landslagsarkitekt auk þess að hafa BA gráðu í alþjóðaviðskiptum. Heiða hefur víðtæka reynslu af því að stýra þverfaglegum verkefnum í stefnumótun, skipulagi og umhverfismati. Heiða kemur til Carbfix frá Rannsóknum og nýsköpun hjá Orkuveitu Reykjavíkur þar sem hún leiddi meðal annars vinnu við stefnumótun, skipulag og umhverfismat. Áður starfaði Heiða sem ráðgjafi í skipulagsmálum hjá ráðgjafarfyrirtækinu Alta.

„Ég hef unnið þétt með frábæru teymi Carbfix frá stofnun fyrirtækisins. Ég er full tilhlökkunar að taka skrefið til fulls og taka þátt í mikilvægri vegferð Carbfix að varanlegri bindingu koldíoxíðs, loftslaginu til heilla,“ segir Heiða.

Nánar um Carbfix:

Carbfix hefur þróað tækni fyrir varanlega bindingu koldíoxíðs í berg, sem notuð hefur verið í áratug með góðum árangri og vakið heimsathygli. Mikill áhugi er á að nýta hana á mun stærri skala, bæði hérlendis og erlendis, og allmörg samstarfsverkefni eru ýmist hafin eða í burðarliðnum.

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.