Hoppa yfir valmynd

Gæðastefna

Stefna Carbfix er að mæta þörfum viðskiptavina með því að miðla vörum og góðri þjónustu með hagkvæmum og öruggum hætti.

Stöðugar umbætur, flæði ferla og lífsferilshugsun liggja til grundvallar í allri starfseminni.

Lífsferilshugsun felur í sér heildarferilinn allt frá upplifun viðskiptavinar og upplýsingagjöf að förgun. Höfð sé hliðsjón af öryggi, hagkvæmni, vistspori á líftíma.

Carbfix leggur sérstaka áherslu á:

- virðisaukandi þjónustu

- faglega verkefnastjórnun

- hagkvæma viðhalds- og eignastjórnun

- skjala- og upplýsingastjórnun

- notkun á tækni til að auka virði og hagkvæmni

Gæðastefnan byggir á gildum og heildarstefnu félagsins og er sett fram til samræmis við eigendastefnu.