Hoppa yfir valmynd

Innkaupastefna

Það er stefna Carbfix að:

  • Beita opnum útboðum við kaup á vörum, þjónustu og verkframkvæmdum. Í útboðum verði tekið tillit til sjálfbærnisjónarmiða og að hagstæðasta tilboði sé tekið. Að öðrum kosti skal beita öðrum innkaupaaðferðum í samræmi við gildandi lög og reglur.
  • Innkaupareglur og innkaupaaðferðir séu skýrar og gagnsæjar.
  • Gæta jafnræðis, gagnsæis og hagkvæmni við öll innkaup.
  • Við innkaup og rekstur samninga skuli taka tillit til sjálfbærnisjónarmiða, s.s. gæða-, heilbrigðis-, mannréttinda-, umhverfis-, upplýsingaöryggis- og öryggissjónarmiða.

Innkaupastefnan byggir á gildum og heildarstefnu Carbfix og er sett fram til samræmis við eigendastefnu samstæðu OR.