Hoppa yfir valmynd

Jafnréttisstefna

Jafnréttisstefna er skuldbinding Carbfix um stöðugar umbætur í jafnréttismálum. Carbfix leggur mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar til grundvallar jafnréttisstefnu sinni. Jafnréttisstefna Carbfix miðar að því að meta einstaklinga að eigin verðleikum og að þeir fái notið jafns réttar. Fyrirtækið vinnur markvisst að því:

• Að starfskjör kynja séu jöfn.

• Að jafna hlutfall kynja innan Carbfix.

• Að auka fjölbreytni innan fyrirtækja og hópa til að mynda varðandi kynferði, aldur, kynhneigð, trúarbrögð, skoðanir, þjóðerni, kynþátta, litarhátta, efnahag, ætterni og stöðu að öðru leyti.

• Að gera starfsfólki kleift að samræma sem best einkalíf og starfsábyrgð.

• Að efla jafnréttismenningu starfsfólks Carbfix.

• Að efla fræðslu og vitund starfsfólks um málefni og áskoranir minnihlutahópa.

• Að vinna gegn einelti, kynbundnu ofbeldi, kynbundnu áreitni og kynferðislegri áreitni innan fyrirtækisins.

• Að tryggja fjölbreytni innan hópa á öllum stigum ábyrgðar- og ákvarðanatöku innan fyrirtækisins og tekið sé mið af jafnréttissjónarmiðum við stefnumótun og stærri ákvarðanir.

• Að tryggja gott aðgengi og vinnuaðstöðu á grundvelli líkamlegs og andlegs atgervis.

Carbfix uppfyllir kröfur í formi laga, reglna og reglugerða um jafnréttismál.

Jafnréttisstefnan byggir á gildum og heildarstefnu Carbfix og er sett fram til samræmis við eigendastefnu.