Hoppa yfir valmynd

18.01.2022

Ólafur Teitur stýrir samskiptum hjá Carbfix

Carbfix hefur ráðið Ólaf Teit Guðnason til að stýra samskiptum og kynningarmálum.

Carbfix hefur ráðið Ólaf Teit Guðnason til að stýra samskiptum og kynningarmálum. Ólafur Teitur er stjórnmálafræðingur og hefur undanfarin fimm ár verið aðstoðarmaður ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Hann var þar áður framkvæmdastjóri samskiptasviðs Rio Tinto á Íslandi, fjölmiðlafulltrúi Straums-Burðaráss og fréttamaður í um áratug, m.a. á RÚV og Viðskiptablaðinu. Ólafur Teitur tekur til starfa hjá Carbfix í byrjun mars.

"Carbfix er að mínu mati eitt mest spennandi fyrirtæki landsins um þessar mundir. Ég hlakka virkilega til að ganga til liðs við öflugt teymi fyrirtækisins og taka þátt í þeim tímamótaverkefnum á sviði föngunar og varanlegrar kolefnisbindingar sem fyrirtækið vinnur að í þágu loftslagsins," segir Ólafur Teitur.

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.