Hoppa yfir valmynd

05.11.2021

Samið um 600 milljóna króna Evrópustyrk til Carbfix

Dirik Beckers, framkvæmdastjóri aðgerða Evrópusambandsins í loftslagsmálum, og Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix, skrifuðu í gær undir tæpra 600 milljóna króna styrktarsamning nýsköpunarsjóðs sambandsins við frekari þróun Carbfix-kolefnisbindingaraðferðarinnar við Hellisheiðarvirkjun Orku náttúrunnar. Styrkurinn nemur tæpum helmingi heildarkostnaðar við verkefnið, sem kallast Silfurberg og miðar að sporlausri orkuvinnslu í virkjuninni.

Edda Sif Pind Aradóttir og Dirik Beckers skrifa undir styrktarsamning Silfurbergs í Brussel í gær.

Undirritunin fór fram í Brussel á einum hliðarviðburða COP26 þar sem Petriccione greindi frá stuðningi sambandsins við þrjú verkefni sem öll miða að kolefnishlutleysi. Edda Sif flutti ávarp á málþingi sem Evrópusambandið gekkst fyrir í tilefni samninganna.

Carbfix hefur þegar komið við sögu á COP26, sem nú stendur yfir, en Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra vék sérstaklega að fyrirtækinu og aðferð þess til varanlegrar kolefnisbindingar í ávarpi við setningu loftslagsráðstefnunnar í Glasgow.

„Markmið Silfurbergs-verkefnisins er að byggja nýja hreinsistöð við Hellisheiðarvirkjun sem mun fanga nær allt koldíoxíð og brennisteinsvetni úr útblæstri virkjunar okkar sem síðan verður dælt niður í nálæg basaltberglög til varanlegrar steinrenningar með Carbfix tækninni. Þar með mun Orka náttúrunnar skipa sér í fremsta flokk grænnar jarðvarmanýtingar með sporlausri framleiðslu rafmagns og varma,“ segir Berglind Rán Ólafsdóttir framkvæmdastýra ON.

Carbfix-aðferðin virkar gegn loftslagsvánni


Carbfix hefur þróað tækni fyrir varanlega bindingu koldíoxíðs við Hellisheiðarvirkjun frá árinu 2007 í samstarfi við innlendar og erlendar rannsóknastofnanir. Tæknin krefst einungis rafmagns og vatns og hefur starfsemin óveruleg umhverfisáhrif.  Tæknin felur í sér að leysa koldíoxíð  í vatni og dæla niður í basaltberggrunninn þar sem náttúruleg ferli steinrenna það til frambúðar. Með þessu móti er koldíoxíðið varanlega bundið í steindum djúpt í berggrunninum og þannig komið í veg fyrir áhrif þess á loftslagið. Einnig er hægt að beita aðferðinni fyrir aðrar gastegundir á borð við brennisteinsvetni, en það hefur einnig verið fangað frá virkjuninni og dælt niður frá árinu 2014.

 

Stærri og öflugri hreinsistöð


Núverandi hreinsistöð Hellisheiðarvirkjunar fangar um 30% koldíoxíðs og um 75% rennisteinsvetnis úr útblæstri hennar, eða um 12 þúsund tonn af koldíoxíði og um 7 þúsund tonn af brennisteinsvetni á ári. Styrkurinn sem Silfurbergsverkefnið hlýtur verður notaður fyrir hönnun og byggingu stærri og öflugri stöðvar við virkjunina sem stefnt er að gangsetja árið 2025. Þar með verður nær öll losun koldíoxíðs  og brennisteinsvetnis frá virkjuninni hreinsuð, eða um 34 þúsund tonn af koldíoxíði og um 12 þúsund tonn af brennisteinsvetni á ári.

Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix: „Það er mikil viðurkenning fyrir ungt þekkingarfyrirtæki eins og Carbfix að fá svo veglegan styrk úr nýsköpunarsjóðnum og til merkis um að kolefnisförgun með Carbfix tækninni er í senn hagkvæm og umhverfisvæn loftslagslausn sem getur haft áhrif langt út fyrir landsteinanna.“

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.