Hoppa yfir valmynd

Umhverfis- og auðlindastefna Carbfix

Umhverfis- og auðlindastefnan er skuldbinding Carbfix um stöðugar umbætur í umhverfismálum. Hún vísar okkur veginn og er grundvöllur góðs samstarfs við hagsmunaaðila. Umhverfis- og auðlindastefnan byggir á gildum og heildarstefnu Carbfix.

Carbfix hlítir öllum ákvæðum laga og reglugerða sem um starfsemina gilda.

Umhverfis- og auðlindastefnan er sett fram með eftirfarandi meginreglum og útfærð nánar með markvissri stjórnun og umbótum þýðingarmikilla umhverfisþátta:

Loftslag og loftslagsáhætta

Carbfix er kolefnishlutlaust. Carbfix vinnur gegn og bregst við áhrifum loftslagsbreytinga með eigin starfsemi og hefur þannig bein áhrif á kolefnisspor íbúa og atvinnulífs. Carbfix stýrir sinni loftslagstengdu áhættu.

Ábyrg auðlindastýring

Carbfix er falin mikil ábyrgð á þeim auðlindum sem það nýtir. Ábyrgðin felst í því að vinna eftir hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar og því að tryggja sjálfbæra nýtingu, það er að komandi kynslóðir búi við sömu tækifæri og núlifandi kynslóðir til að nýta auðlindirnar og að unnt sé að staðfesta að þannig sé að verki staðið. Carbfix skuldbindur sig til þess að leita farsælla lausna þar sem auðlindanýting í almannaþágu er vegin og metin í samhengi við aðra hagsmuni. Carbfix mun verja auðlindirnar fyrir hættum og ágengni, vegna þeirrar ábyrgðar sem fyrirtækinu er falin.

Gagnsemi veitna

Aðgangur að veitum Carbfix stuðlar að heilnæmum lífsskilyrðum fólks og tækifærum til umhverfisvænnar starfsemi í samfélaginu. Þessi jákvæðu umhverfisáhrif eru ráðandi þegar ákvarðanir eru teknar um þróun virkjana og veitna. Þær ákvarðanir eru byggðar á því að Carbfix gerir miklar kröfur um gæði, afhendingaröryggi og hagkvæmni og birtir greinargóðar upplýsingar um starfsemina og framtíðaráætlanir fyrirtækisins.

Áhrif losunar

Starfsemi Carbfix leiðir óhjákvæmilega til þess að efni og orka losna út í umhverfið. Carbfix gætir fyllstu varúðar í starfsemi sinni og stefnir að sporléttri vinnslu og starfsemi. Losun fer því aðeins fram að áhrif á heilsu séu hverfandi og áhrif á umhverfi viðunandi. Carbfix dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda og mengandi efna eins og kostur er og leggur áherslu á rannsóknir og þróun til að geta nýtt bestu mögulegu lausnir í þeim tilgangi.

Áhrif í samfélaginu

Hjá Carbfix býr mikil þekking og reynsla á hagnýtingu jarðvarma, uppbyggingu innviða og öðrum þáttum í starfsemi fyrirtækisins. Carbfix miðlar þekkingu og beitir áhrifum í virðiskeðjunni, sem hvetur til ábyrgrar umgengni við umhverfið, ábyrgrar neysluhegðunar og jákvæðra samfélagsáhrifa.

Reksturinn

Rekstur Carbfix byggir á skipulegum og öguðum vinnubrögðum starfsfólks á dreifðum starfsstöðvum. Daglegt starf felst meðal annars í því að nýta vel orku og aðföng, vanda til mannvirkja, hirða vel um lóðir og lendur, meðhöndla úrgang á ábyrgan hátt og hvetja til vistvænna samgangna. Carbfix vill vera til fyrirmyndar í starfsemi sinni og byggja upp hæfni starfsfólks í þeim efnum.

Þýðingarmiklir umhverfisþættir

Carbfix skilgreinir eftirfarandi umhverfisþætti sem þýðingarmikla með hliðsjón af þeim meginreglum sem fram koma í umhverfis- og auðlindastefnunni. Carbfix setur sér markmið um þessa umhverfisþætti og skilgreinir ábyrgð:

Loftslag og loftslagsáhætta:

  • Losun gróðurhúsalofttegunda
  • Binding gróðurhúsalofttegunda

Ábyrg auðlindastýring:

  • Land undir virkjanir og önnur athafnasvæði
  • Verndun neysluvatns

Gagnsemi veitna:

  • Aðgangur að kolefnisveitu

Áhrif losunar:

  • Losun uppleysts koltvíoxíðs í vatni og eftirlit með grunnvatni
  • Jarðskjálftar vegna niðurdælingar á vatni með uppleystu koltvíoxíði

Áhrif í samfélaginu:

  • Miðlun þekkingar á hagnýtingu kolefnisveitu og öðrum þáttum í starfseminni
  • Miðlun þekkingar um ábyrga neysluhegðun
  • Innkaup

Reksturinn:

  • Úrgangur
  • Samgöngur
  • Mannvirki og umgengni
  • Efnanotkun