Hoppa yfir valmynd

Upplýsingaöryggisstefna

Upplýsingar eru mikilvæg verðmæti í starfsemi Carbfix til ákvarðanatöku og framvindu ferla. Það er stefna Carbfix í upplýsingaöryggismálum að upplýsingar séu réttar, tiltækar og trúnaðar1 gætt þar sem við á. Það gerir Carbfix með því að:

  • Finna og meðhöndla áhættu og vinna að stöðugum umbótum
  • Treysta fólki og fela því umsjón með upplýsingaöryggi með því að efla vitund
  • Verja gögn og tryggja trúnað
  • Vinna með gögn þannig að þau skili sér á réttan vistunarstað, séu rétt, spillist ekki og að úr verði áreiðanlegar upplýsingar
  • Notendur hafi auðveldan aðgang að upplýsingum sem þeir hafa þörf fyrir - Opið en öruggt

Upplýsingaöryggisstefna Carbfix byggir á gildum og heildarstefnu Carbfix og er sett fram til samræmis við eigendastefnu samstæðu OR.