Carbfix
News Media Header
21 Mar 2025
Breytt áform í Straumsvík
Aukin áhersla á innlend verkefni

Nýlegt álit Skipulagsstofnunar er jákvætt gagnvart Coda Terminal í Straumsvík en ekki hefur náðst samhljómur milli fulltrúa Hafnarfjarðarbæjar og Carbfix um framgang uppbyggingar.

 

Carbfix hefur ákveðið að færa áherslur í loftslagsverkefnum sínum yfir á innlenda stóriðju í samræmi við samstarfssamninga við bæði Elkem á Grundartanga og Rio Tinto í Straumsvík, og þróa áfram möguleg verkefni í Þorlákshöfn og á Bakka við Húsavík.

 

„Ákvörðun er tekin þar sem ekki náðist nægilega góður samstarfsgrundvöllur fyrir verkefnið með Hafnarfjarðarbæ sem og tafir sem hafa haft áhrif á tímalínur okkar og okkar samstarfsaðila. Verkefnið í Straumsvík var fyrsta sinnar tegundar og í nýsköpun gerist það iðulega að verkefni eru aðlöguð og þróuð áfram á öðrum forsendum, við í Carbfix þekkjum það mjög vel og fyrir liggja spennandi hugmyndir að verkefnum í Ölfusi og Norðurþingi. Þar bíða gríðarleg tækifæri fyrir þau svæði og Ísland almennt í að byggja upp nýjan iðnað með áherslu á loftslagsmál og ný tæknistörf. Við tökum með okkur lærdóm frá þessu verkefni og höldum ótrauð áfram. Markmið Carbfix er áfram að útvíkka starfsemi sína og vera hluti af lausninni“ segir Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix.

 

Aukin áhersla verður sett á samstarf um bindingu gróðurhúsalofttegunda með Elkem á Íslandi og Þróunarfélags Grundartanga sem var undirritað síðasta vetur og verður rannsóknarhola boruð þar næsta sumar. Þá verður áfram unnið eftir samkomulagi við álverið í Straumsvík um að fanga og binda frá þeim CO2.

Contact Us

Contact Us Image
General

Visit arrangements, scientific inquiries, or any general questions

Contact Us Image
Commercial

Discover our solutions and how we can work together

Contact Us Image
Press Inquiries

Contact us for your story needs, or any media related questions

Contact Us Image
Job Applications

Explore career openings and join our growing team of Carbfixers