Carbfix
News Media Header
8 May 2025
Carbfix hlýtur eitt af fyrstu starfsleyfum í Evrópu fyrir geymslu CO2

Carbfix hlaut í dag starfsleyfi til geymslu koldíoxíðs í jörðu að Hellisheiði frá Umhverfis- og orkustofnum til þess að halda áfram steindabindingu á CO2, umfram þau tæplega 100 þúsund tonn sem fyrirtækið hefur nú þegar bundið og hefðu annars verið losuð út í andrúmsloftið. Rannsóknar- og þróunarverkefni upp að 100 þúsund tonnum eru undanþegin starfsleyfisskyldu. 

 

Starfsleyfið markar tímamót, en það er annað starfsleyfið sem gefið er út í Evrópu til geymslu kolefnis í jörðu og er Carbfix fyrst til að hefja niðurdælingu á grundvelli slíks leyfis.  Starfsleyfið er veitt eftir ítarlega yfirferð á ferlinu, frá föngun CO2 annars vegar frá jarðvarmavirkjun Orku náttúrunnar á Hellisheiði og hins vegar föngun þess úr andrúmsloftinu á vegum Climeworks,  til varanlegrar steinrenningar neðanjarðar með Carbfix aðferðinni.  

 

Carbfix er fyrsta fyrirtækið á heimsvísu til að steinrenna CO2 og geyma það þannig varanlega og örugglega í berglögum neðanjarðar.  

 

Umhverfis- og orkustofnun veitir starfsleyfið  samkvæmt CCS (Carbon Capture and Storage) tilskipun Evrópusambandsins (2009/31/EB) sem var innleidd á Íslandi fyrir nokkrum árum. Þessum áfanga  er náð með þátttöku Orku náttúrunnar, Carbfix og Nýsköpunarsjóðs Evrópusambandsins sem veitti 3,9 milljóna evra styrk til verkefnisins. Samstarfið var undir verkefnisheitinu Silfurberg, en það er sú kolefnissteind sem myndast þegar koldíoxíð binst við berg og myndar holufyllingar.  

 

Með þessu nýja starfsleyfi verður mögulegt að gera Hellisheiðarvirkjunina kolefnishlutlausa á næstu vikum.  

 

„Þetta er stór áfangi og mikilvægt skref í vexti fyrirtækisins í átt að því að hafa raunveruleg jákvæð áhrif á loftslagsbreytingar. Öll skref skipta máli og leyfisveitingin setur virkjun ON í fararbrodd innan jarðvarmageirans á heimsvísu. Með þessum fyrstu leyfum í Evrópu heldur Ísland jafnframt ákveðinni forystu þegar kemur að uppbyggingu nýs iðnaðar sem er nauðsynlegur hluti af stefnu bæði ESB og IPCC þegar kemur að loftslagsmarkmiðum“ segir Edda Sif Pind Aradóttir framkvæmdastýra Carbfix.  

 

Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu. Þær skoðanir og álit sem fram koma hér eru eingöngu höfundarins/höfundanna og endurspegla ekki endilega skoðanir Evrópusambandsins eða Loftslags- og umhverfisstofnunnar ESB (CINEA). Hvorki Evrópusambandið né styrkveitandi stofnun bera ábyrgð á þeim.  

Contact Us

Contact Us Image
General

Visit arrangements, scientific inquiries, or any general questions

Contact Us Image
Commercial

Discover our solutions and how we can work together

Contact Us Image
Press Inquiries

Contact us for your story needs, or any media related questions

Contact Us Image
Job Applications

Explore career openings and join our growing team of Carbfixers