

Í umfjöllun Heimildarinnar er það gert tortryggilegt að Carbfix setji fram möguleika á fjölgun og stækkun verkefna, meðal annars að auka umfang verkefnis í Hafnarfirði og að þeim upplýsingum sé haldið frá bæjaryfirvöldum og íbúum. Það er rangt.
Í skriflegu svari til Heimildarinnar um þessar rangfærslur segir:
Í Coda Terminal verkefninu sem áætlað er að verði í Straumsvík og á iðnaðarsvæðinu í Hafnarfirði er sótt um leyfi fyrir að dæla niður að hámarki 3 milljónum tonna af CO2 árlega þegar fullum afköstum hefur verið náð, en verkefnið verður byggt upp í áföngum. Miðað við 30 ára líftímaverkefnisins er áætlað að það muni í heild nýta um 1% af mögulegri bindigetu berggrunnsins á svæðinu. Það eru engin áform um að dæla meira niður en sótt er um á svæðinu en ef áhugi yrði á slíku í framtíðinni fæli það í sér nýtt verkefni sem yrði lagt fyrir í nýju umhverfismati og leyfisferlum. Líkt og við höfum ítrekað bent á þá er full þörf á fleiri verkefnum sem koma í veg fyrir losun á CO2 á Íslandi og víðar.
Markmið Carbfix er að útvíkka notkun sannaðrar tækni til að hafa jákvæð áhrif á loftslagið. Í því felst eins og margoft hefur komið fram að fjölga verkefnum og stækka þau ef möguleiki er á til að takast á við stærsta verkefni okkar tíma. Carbfix mun áfram fylgja stífum reglum sínum um val á viðskiptavinum.
Í verkefnaþróun Carbfix hafa verið gerðar allnokkrar kynningar sem ætlaðar eru fjárfestum þar sem greiningar á markaði og framtíðarmöguleikar eru til umfjöllunar.
Rangt er farið með stöðu viðræðna í fjárfestingaferli, viðskiptasambönd og viljayfirlýsingar í umfjöllun Heimildarinnar og ályktanir dregnar sem ekki standast skoðun. Carbfix hefur átt samtöl við fjöldan allan af fyrirtækjum sem losa CO2 og í mörgum tilfellum neitað viðskiptum og frekara samstarfi.
Carbfix vil taka fram að það hefur aldrei verið gerð nein viljayfirlýsing við LaFarge/Holcim eins og haldið er fram á forsíðu blaðsins.
Carbfix er tilbúið að veita viðtöl og frekari upplýsingar sé eftir því leitað.
Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um LaFarge.
Visit arrangements, scientific inquiries, or any general questions
Discover our solutions and how we can work together
Contact us for your story needs, or any media related questions
Explore career openings and join our growing team of Carbfixers