Hoppa yfir valmynd

04.01.2021

Grjót­hörð lofts­lags­lausn

Edda Sif Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix

Grjóthörð loftslagslausn

Carbfix tæknin, sem fangar og fargar koldíoxíði (CO2) m.a. úr útblæstri orku- og iðnvera, byggir á íslensku hugviti sem þróað var í samvinnu Orkuveitu Reykjavíkur (OR), Háskóla Íslands og alþjóðlegs teymi vísindafólks. Koldíoxíðið er fangað úr útblæstri eða beint úr andrúmslofti, leyst í vatni og dælt djúpt niður í berglög þar sem það steinrennur á innan við tveimur árum. Aðferðin hefur verið sannreynd sem hagkvæm og umhverfisvæn leið til að binda koldíoxíð varanlega og koma þannig í veg fyrir áhrif þess á loftslagið og hefur Carbfix ohf. verið rekið sem sjálfstætt dótturfélag OR frá upphafi þessa árs.

Það hefur gengið á ýmsu þetta fyrsta rekstrarár félagsins enda um fordæmalausa tíma að ræða eins og þekkt er orðið. Þó er jákvætt að þrátt fyrir heimsfaraldur hafa loftslagsmálin líka verið í brennidepli á árinu – enda ekki vanþörf á þar sem geigvænlegar afleiðingar hlýnunar jarðar verða sífellt augljósari með auknum fjölda hamfaraveðuratburða.

Metnaðarfyllri loftslagsmarkmið

Nýverið kynntu íslensk stjórnvöld metnaðarfyllri loftslagsmarkmið og plön um eflingu aðgerða sem stuðla eiga að kolefnishlutleysi Íslands fyrir árið 2040. Góður árangur hefur náðst í að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá ákveðnum geirum en jafnframt ljóst að gefa þarf hraustlega í græna nýsköpun og fjárfestingar í loftslagslausnum svo markmiðin náist. Á það t.a.m. við um nýsköpun tengda föngun og förgun koldíoxíðs frá stóriðju sem m.a. er getið um í aðgerðaráætlun Íslands í loftslagsmálum til samræmis við viljayfirlýsingu stjórnvalda, stóriðjufyrirtækjanna og OR frá því í fyrra.

Grænn og loftslagsvænn iðnaður

Hér heima fyrir hefur jarðvegurinn verið plægður fyrir nýja græna atvinnugrein, kolefnisföngun og -förgun. Nú liggur fyrir Alþingi ráðherrafrumvarp um niðurdælingu koldíoxíðs sem m.a. felur í sér beinan fjárhagslegan hvata fyrir aðila sem falla undir viðskiptakerfi ESB um losunarheimildir. Frumkvöðlasamningur Carbfix, Orku náttúrunnar og svissneska fyrirtækisins Climeworks sem undirritaður var á árinu, og felur í sér föngun og förgun koldíoxíðs sem þegar hefur verið sleppt út í andrúmsloftið, er til marks um þá miklu möguleika sem felast í íslenska berggrunninum, tækniþekkingu og hreinni orku.

Erlend stórfyrirtæki hafa sýnt Carbfix tækninni mikinn áhuga á árinu og við hlökkum til að deila fréttum af nýjum verkefnum og vexti með tilheyrandi verðmætasköpun og jákvæðum áhrifum fyrir loftslagið. Þá hefur hróður Carbfix tækninnar borist víða á öldum ljósvakans á árinu enda féllu nokkur nýsköpunarverðlaun okkur í skaut auk þess sem nokkrir af stærstu fjölmiðlum og efnisveitum heims fjölluðu um okkur, þ.m.t. Netflix, the Weather Channel, NOVA PBS og BBC.

Markmið í augsýn

Fyrir tilstuðlan metnaðarfyllri markmiða ríkja heims þegar kemur að loftslagsmálum sjáum við nú í fyrsta skipti möguleika á því að geta náð markmiðum Parísarsamningsins. Allar lausnirnar sem þarf eru þegar til – verkefnið felst í því að auka umfang þeirra með veldisvexti á komandi árum og þannig draga hratt úr losun gróðurhúsalofttegunda. Ísland getur skapað sér mikil tækifæri með markvissri uppbyggingu græns og loftslagsvæns iðnaðar sem og útflutningi á hugviti. Starfsfólk Carbfix horfir björtum augum til framtíðar og er til þjónustu reiðubúið að veita íslenskum og erlendum fyrirtækjum aðgang að grjótharðri, varanlegri og hagkvæmri loftslagslausn.

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.