Hoppa yfir valmynd

Persónuverndarstefna

Öll meðferð Carbfix á persónuupplýsingum lýtur lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglum sem settar eru samkvæmt þeim. Carbfix gætir þess að öll vinnsla persónuupplýsinga innan fyrirtækisins sé í samræmi við framangreind lög og framfylgir því að vinnsluaðilar sem fá aðgang að persónuupplýsingum fylgi þeim einnig.

Carbfix upplýsir einstaklinga um þá vinnslu persónuupplýsinga sem á sér stað á vegum fyrirtækisins og í hvaða tilgangi hún er unnin. Carbfix tryggir að vinnsla fari ekki fram í öðrum tilgangi en upplýst hefur verið um nema með fullri vitneskju hlutaðeigandi og fullnægjandi heimild samkvæmt persónuverndarlögum. 

Einstaklingar geta óskað upplýsinga um vinnslu sem á sér stað hjá Carbfix og varðar þá sjálfa. Þeir geta andmælt henni telji þeir að hún samræmist ekki gildandi lögum og reglum og eftir atvikum krafist þess að rangar, villandi eða ófullkomnar persónuupplýsingar verði leiðréttar eða þeim eytt. 

Greinargerð um vinnslu Carbfix á persónuupplýsingum

Beiðni um upplýsingar

Samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga eiga einstaklingar rétt á að fá staðfestingu á því frá OR og dótturfélögum hvort verið sé að vinna persónuupplýsingar um þá og, ef svo er, hafa þeir rétt til aðgangs að persónuupplýsingunum og að fá nánari upplýsingar um tiltekin atriði sem tengjast vinnslunni.

Ef þú vilt fá aðgang að gögnum á grundvelli laga um persónuvernd, þá biðjum við þig að fylla út þar til gert eyðublað. Útfyllt eyðublað sendirðu í tölvupósti á netfangið beidniumupplysingar@or.is. Við afgreiðum beiðnina þína svo fljótt sem verða má.

Beiðni um upplýsingar á grundvelli persónuverndarlaga

Vafrakökur

Nánar um vafrakökur